AIC – ÍSLAND / ICELAND
Avians ehf., Nauthólsvegi 66, 102 Reykjavík /
Avians, Nautholsvegi 66, IS-102 Reykjavik, Iceland
Sími / Telephone: + 354 424 4000
ais@avians.is
https://www.avians.is/ 

 
AIC A 10/2026
Effective from  14 MAY 2026
Published on 03 APR 2026
 

 
Innleiðing ratsjársvaraskyldu innan BIRK CTR/
Implementation of Transponder Mandate within BIRK CTR

Efnisleg ábyrgð: Samgöngustofa

1 Inngangur

Tilgangur þessa upplýsingabréfs er að upplýsa flugmenn um fyrirhugaða innleiðingu ratsjársvaraskyldu innan flugstjórnarsviðs Reykjavíkurflugvallar (BIRK CTR).

2 Upplýsingar

Krafa um notkun ratsjársvara verður innleidd samhliða AIRAC útgáfu þann 1. október 2026.
Markmið innleiðingarinnar er að bæta kögun í loftrými stjórnuðu af flugturninum á Reykjavíkurflugvelli.

3 Kröfur um búnað

  • Öll loftför innan BIRK CTR skulu vera búin mode A, mode C eða mode S ratsjársvara.
  • Undanþágur verða veittar samkvæmt beiðnum sem  hægt verður að sækja um á vefsíðu Avians.

4 Afgreiðsla undaþága

Undanþágur verða afgreiddar af flugturni, eins fljótt og mögulegt er innan dagsins.
Flugmenn mega búast við að fá úthlutað brottfarar- og/eða komutíma svo hægt sé að stýra álagi og fjölda loftfara með undanþágu hverju sinni.

5 Tengiliðir

Ef óskað er frekari upplýsinga, eða ef koma þarf athugasemdum á framfæri, vinsamlegast hafið samband við:
     Samgöngustofa
     Ármúla 2 
     108 Reykjavík, Ísland
 
Netfang / Email: ans@icetra.is

Sími / Phone:  +354 480 6000
 

 
Upplýsingabréf fellt út gildi:
Engin
 

 
Efni eftirfarandi NOTAM skeyta birt í þessu upplýsingabréfi:
Ekkert
 

ENDIR / END